Vertu sterkur
16.11.2006 11:07:09 / emjabymja

Árni

Þakka Guði fyrir að Árni Johnsen skuli vera jafn illa gefinn og raun ber vitni. Annars væri hann virkilega hættulegur. Maður veit a.m.k. hvar maður hefur hann.

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 09:41:53 / emjabymja

Dauði nr. 4

Hangi á heilsugæslu Akraness. Dauði, dauði, d-AU-ði. Hef hins vegar uppgötvað í leiðindum mínum einhverja glæsilegustu leikkonu fyrri tíma. Hana Dorothy Dandridge. Glöggir lesendur muna e.t.v. eftir þakkarræðu Halle Berry er hún tók við Óskarnum, þar sem hún þakkar/grætur/heiðrar Dorothy. En hún Dorothy er einmitt svartasta hvíta konan sem ég hef nokkurn tímann séð.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2006 19:19:47 / emjabymja

Færsla 3

Finnst ég vera að missa virðingu kisa. Sakna 31. tannarinnar.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 18:39:56 / emjabymja

Blogg 2

Ég mátti ekki horfa á sjónvarp í viku. En í dag má ég það. Lífið er hverfult. En ég er ekki lengur með Digital Ísland. Lífið er hverfult. Í síðustu viku var ég með 31 tönn. Í dag er ég með 30 tennur. Lífið er svo sannarlega hverfult.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 09:20:02 / emjabymja

Blogg

Kisi er sofandi. Hann er miklu sniðugri en ég. Svo er hann með feld, einnig sniðugt. Veit ekki með þessar klofsleikingar. Próf á eftir. Langar ekki. Vil ekki. Get ekki. Svo virðist hann geta sofnað hvar sem er. Sofnaði ofan í þvottakörfunni í gær. Skrýtin lykt af honum í dag.

» 1 hafa sagt sína skoðun